Persónuverndarstefna Trio Events Reykjavík gildir um allar þær persónugreinanlegar upplýsingar sem félagið kann að safna gegnum vef trioevents.is eða með öðrum rafrænum samskiptum.

Persónuverndarstefna Trio Events Reykjavík, kt. 521016-0940, hlítir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga ná ekki til lögaðila.

Trio Events Reykjavík hefur persónuvernd og öryggi að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viðskiptavini sína og ber ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar. Félagið selur aldrei persónugreinanlegar upplýsingar um viðskiptavini sína.

Trio Events Reykjavík takmarkar mjög vinnslu persónugreinanlegra upplýsinga og safnar ekki ónauðsynlegum upplýsingum um viðskiptavini sína eða starfsmenn. Gildir það um heimsóknir á vef félagsins sem og önnur rafræn samskipti.

Þú getur lesið þér til um grundvallarhugtök laganna á vef Persónuverndar (https://www.personuvernd.is/).

 

Trio Events Reykjavík notar vafrakökur (e. cookies) og þegar þú smellir á „Ég samþykki“ ertu að leyfa okkur að nota vafrakökur.

Skilmálar vafrakaka

Vafrakökur eru litlar textaskrár, nokkurs konar fótspor sem vistast í tölvu notandans. Þær eru notaðar til að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu til samræmis við auðkenninguna ásamt því að greina heimsóknir á vefsíðuna.

Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í textaskránni. Með notkun kaka öflum við vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur skoða og getum því aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.

Með því að samþykkja skilmála um notkun á kökum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

  • Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
  • Lengd innlita gesta
  • Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
  • Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
  • Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
  • Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
  • Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Allar upplýsingar sem kökurnar gefa okkur eru nafnlausar og eru engar persónulegar upplýsingar vistaðar. Engum upplýsingum er deilt með þriðja aðila.

Í flestum vöfrum er hægt að breyta öryggisstillingum svo að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna í stillingum flestra vafra.

Réttur þinn

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þig. Þú getur líka í sumum tilvikum átt rétt á að upplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.

Ef þú vilt fá upplýsingar um persónugreinanlegar upplýsingar sem við kunnum að hafa um þig getur sent okkur tölvupóst á trio@trioevents.is