um
okkur
Við erum einvala lið með áratuga reynslu í skipulagningu og hönnun viðburða. Tryggjum vandaða fjármála- og verkefnastjórnun.
STJÓRNENDUR
AKG
Anna Katrín Guðmundsdóttir hefur áratuga reynslu sem verkefnastjóri í mjög fjölbreyttum verkefnum og viðburðum, lengst af sem framleiðandi sjónvarpsefnis og útsendingarstjóri beinna útsendinga. Í seinni tíð hafa verkefnin verið fjölbreyttari og úr ólíkari áttum, svo sem skipulagning ráðstefna, verkefnastjórnun við framleiðslu á margmiðlunarsýningum, verkstýring við teiknimyndagerð, framleiðsla kvikmynda og sjónvarpsefnis auk skipulagninga sérferða fyrir erlenda ferðamenn.
Anna Katrín er með BA í Broadcasting og MPM í verkefnastjórnun.
ÝG
Ýr Gunnlaugsdóttir hefur unnið að skipulagningu á ráðstefnum, smáum sem stórum um árabil og stýrði viðburða- og ferðadeild Háskólans í Reykjavík. Hún hefur fjölbreyttan bakgrunn úr atvinnulífinu, er öflug sölukona sem rak og átti verslun í Smáralind. Einnig bjó hún lengi erlendis og talar meðal annars reiprennandi þýsku og svissþýsku.
Ýr er með diploma í hótelfræðum bæði frá Schweizerische Hotelfachschule Luzern og HotelHandel Schule Bern í Sviss.